Þú færð 3f2 af leggings, sokkabuxum, sokkum og nærbuxum með kóðanum: "3f2"

Leita

Leita í vörulínu

    Þessi hluti inniheldur ekkert efni.

    Image caption appears here

    Þessi hluti inniheldur ekkert efni.

    Image caption appears here

    Add your deal, information or promotional text

    Þessi hluti inniheldur ekkert efni.

    Image caption appears here

    Add your deal, information or promotional text

    Add your deal, information or promotional text

    Skilmálar

    UPPLÝSINGAR UM SELJANDA

    POP Retail, kt. 6605141550, Kringlan 4-12, 103 Reykjavík, sími 568-1822, vsk númer 118297, tölvupóstur polarnopyret.island@gmail.com  

    VERÐ

    Öll verð eru með 24% virðisaukaskatti. Athugið að verð getur breyst án fyrirvara vegna gengismála, prentvillu eða rangra upplýsinga.

    Polarn O. Pyret áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða vara er ekki til eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Slíkar pantanir verða endurgreiddar á sama greiðslukort. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

     

    GREIÐSLUMÖGULEIKAR

    Boðið er upp á að greiða með greiðslukorti í netverslun Polarn O. Pyret.

    Hægt er að greiða með greiðslukortum frá Visa, Maestro, Mastercard, Eurocard og Netgíró.

    Netverslun Polarn O. Pyret notar örugga greiðslugátt frá Valitior á Íslandi.

     

     

    AFHENDING OG VÖRUSKIL

     

    AFHENDING VÖRU

    Hægt er að sækja vöru í verslun Polarn O. Pyret í Kringlunni án kostnaðar.

    Frí heimsending er á pöntunum 10.000 kr og yfir. Annars greiðist 1.200 kr fyrir póstsendingu.

    Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða full endurgreiðsla.

    Það tekur í flestum tilvikum 3-4 virka daga að fá vöruna í hendurnar eftir að pöntun er móttekin. Pantanir eru ekki sendar út um helgar. Við sendum þér tölvupóst þegar varan fer frá okkur.

    Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum þar sem hægt er.

     

    AÐ SKIPTA OG SKILA VÖRU 

    Hægt er að skila vöru innan 14 daga frá pöntun (skila-/skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu). Ef varan uppfyllir ekki væntingar kaupanda getur hann skilað vörunni innan 14 daga að uppfylltum þessum skilyrðum:

    • Varan skal að vera ónotuð
    • Varan skal vera í söluhæfu ástandi
    • Varan skal vera með öllum merkjum og í upprunalegum umbúðum
    • Greiðslukvittun þarf að fylgja

    Skilafrestur hefst þegar vara er afhent skráðum viðtakanda. Hægt er að endursenda vöru til Polarn O. Pyret, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða gallaða vöru. Við endurgreiðum vöruna innan 10 daga frá því að við fáum hana í hendur. Vinsamlega sendið tölvupóst á netfangið info@polarnopyret.is eða hringið í 568-1822 áður en vöru er skilað.

    Við vöruskil á viðskiptavinur rétt á að fá afhenta inneignarnótu ef ný vara er ekki tekin upp í þá vöru sem skilað er.

    Vöru má einnig skila í verslun okkar í Kringlunni. Þú þarft að koma með vöruna og kvittunina. Í versluninni getur þú líka skipt í aðra vöru án kostnaðar.

    Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003

     

    ÚTSÖLUR OG VÖRUSKIL

    Skila og skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu. Ef þú kemur með vöruna á meðan á útsölu stendur er hægt að skipta henni í aðra útsöluvöru. Endurgreiðsla og inneignir gildir ekki um útsöluvöru.

     

     

    COOKIES OG PERSÓNUVERND

     

    ÖRYGGI OG PERSÓNUVERND

    Þegar þú notar vef www.polarnopyret.is þá verða til upplýsingar um heimsókn þína. Við miðlum þeim ekki til annara.

    Polarn O. Pyret virðir friðhelgi persónuupplýsinga viðskiptavina sinna. Með því að heimsækja vefinn lýsir þú þig samþykka/n skilmálum okkar um persónuvernd og öryggi.

     

    HVAÐ ERU VAFRAKÖKUR (E. COOKIES)

    Cookie er lítil textaskrá sem vefsvæðið getur sett inn á tölvuna þína eða önnur snjalltæki þegar vefsvæði Polarn O. Pyret, www.polarnopyret.is  er heimsótt í fyrsta sinn. Textaskráin er geymd á vefvafra notenda og vefur okkar þekkir skrána. Upplýsingarnar í textaskránni má nota til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu, bæta þjónustuna o.fl. Þetta gerir það mögulegt að kerfið okkar getur sent ákveðnar upplýsingar í vafra notenda og getur gert upplifun notanda ánægjulegri. Cookies geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar. 

     

    NOTKUN POLARN O. PYRET Á VAFRAKÖKUM

    Með því að samþykkja skilmála Polarn O. Pyret um notkun á cookies er fyrirtækinu m.a. veitt heimild til þess að:

    • bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna
    • að gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum
    • að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar
    • að birta notendum auglýsingar
    • að safna og senda tilkynningar um fjölda notenda og umferð um svæðið

    Við notum Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

    Þjónusta Siteimprove er nýtt á vefnum með svipuðum hætti og Google Analytics, til dæmis til telja heimsóknir og til að finna brotna tengla sem notendur smella á sem og bæta upplifun notenda inn á vefnum.  

    PERSÓNULEGAR UPPLÝSINGAR SEM VIÐ SÖFNUM

    Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, netfangi og símanúmeri í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér eða vegna annarra samskipta við þig. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem þú kaupir. Einnig fjármálatengdar upplýsingar og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir. Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við skilmála GDPR frá 2018

    Ef þú skráir þig á póstlista eða gefur upp netfangið þitt sendum við þér fréttabréf. Ef þú færð nú þegar tölvupósta frá fyrirtækinu en vilt hætta að fá þá er hægt að senda okkur póst á info@polarnopyret.is

    Neðst á öllum markpósti sem við sendum er einnig hnappur „afskrá af póstlista“ sem býður upp á að láta fjarlægja það netfang sem pósturinn var sendur á af póstlistanum.

    AÐ VERSLA Á VEFNUM OKKAR

    Við leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinga þegar keyptar eru vörur í gegnum vefsíðuna. Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.

    SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.