NÚ ER 20% AFSLÁTTUR AF DERHÚFUM, STUTTERMABOLUM & SUMARSKÓM MEÐ
KÓÐANUM: SUMAR2026
Collections
Add your deal, information or promotional text

Hvað er svona sérstakt við útifötin frá okkur?
Það mikilvægasta af öllu…útifötin okkar innihalda engin hættuleg efni eins og til dæmis blý eða formalín sem má finna í svo mörgum fötum nú til dags! Þannig þú getur andað léttar vitandi að fötin frá okkur eru og munu aldrei verða skaðleg börnunum þínum
Til þess að gera útifötin vatnsfráhrindandi notum við BIONIC-FINISH® ECO sem inniheldur engin PFAS, oft kölluð ‘forever chemicals’ á ensku og til þess að lita fötin okkar notum við ‘Dope Dye’ sem er skilvirk og mun umhverfisvænni aðferð til þess að lita föt og getur skilað sér í allt að 50% minni vatnsnotkun ásamt því að minnka notkun efna um 85% og CO2-losun minnkar um allt að 60%. Frekar ‘dope’ ef þú spyrð okkur! Mörg af okkar útifötum eru með límdum eða lokuðum saumum sem gerir þau vatnsheld
Við elskum endurvinnslu! Við notum endurunnið polyester sem kemur úr plastflöskum eða svokölluðum ‘PET’ flöskum. Hver flíspeysa er t.d. gerð úr 13 endurunnum plastflöskum sem þýðir hvað? 13 flöskum minna í hafið eða í landfyllingu. Svo er notað endurunnið polyamide í flíkurnar okkar sem kemur úr fiskinetum en vissir þú að fiskinet eru einn helsti mengunarvaldurinn í hafinu?
Öll útifötin okkar eru með ENDURSKINSMERKJUM en endurskinsmerki eru svo ofboðslega mikilvægt sérstaklega á Íslandi þar sem að það er dimmt allan ársins hring liggur við! Börnin því algjörlega skína í útifötum frá okkur, bókstaflega! Og einn fróðleiksmoli að lokum …útifötin okkar eru framleidd með það í huga að duga allt að þremur börnum, að minnsta kosti! Þau eru því hin fínasta fjárfesting í fataskápinn
GOTS & BCI vottun
Kringlan 1. hæð
568 1822
Afgreiðlutími 2 - 4 dagar
Sendum frítt pantanir yfir 15.000kr
Þessi vefsíða notar vefkökur (cookies) til að bæta upplifun þína. Með því að heimsækja vefinn samþykkir þú skilmála um vefkökur.
Vertu með í klúbbi Polarn O. Pyret og skráðu þig hér